Thursday, November 27, 2008

Gerumst umhverfisvæn í kreppunni

Nú er rétti tíminn til þess að skoða venjur sína og draga úr á eins mörgum stöðum og hægt er. Hér læt ég fylgja einfalda hluti sem hjálpa ykkur að lækka rafmagnsreikninginn um heilan helling svo verðið þið líka agalega umhverfisvæn sem er stór kostur......

Slökkvið ljósin
Ljós loga oft að óþörfu þar sem enginn hefst við. Þeir, sem gleyma að slökkva á eftir sér, eru nánast að kasta peningum út um gluggann.
Notið rétt ljós og réttar perur
Við val á ljósum er nauðsynlegt að hafa í huga hversu mikillar lýsingar er þörf. Veljið ljós sem gefa þá lýsingu sem þið þurfið og notið ekki sterkari perur en nauðsynlegt er því orkunotkunin eykst eftir því sem peran er sterkari. Notið flúrpípur þar sem þess er kostur, þær gefa mikla birtu án þess að eyða miklu rafmagni. Gætið þess að skermar og ljósakúplar dragi ekki úr birtunni

Uppþvottavélin
Fyllið uppþvottavélina. Hún notar jafnmikla orku hvort sem mikið eða lítið er þvegið í einu. Notið sparnaðarhnappinn (E) eins oft og kostur er. Pottar og önnur áhöld, sem taka mikið rými, er ekki hagkvæmt að þvo í uppþvottavélinni. Þvoið upp sem fyrst svo að matarleifar nái ekki að þorna. Þá nægir styttra þvottakerfi og lægra hitastig.

Þvottavélin
Fyllið vélina af þvotti. Það kostar álíka mikið að því lítinn og mikinn þvott. Veljið ekki of hátt hitastig. Vélin notar 30% minni orku ef hitinn er lækkaður um þriðjung. Sleppið forþvotti ef þvotturinn er lítið óhreinn. Það sparar 20 % orku. Skolun með köldu vatni fyrir þvott getur sparað orku.
Þurrkarinn
Vindið þvottinn sem best áður en hann er settur í þurrkarann og hreinsið ló úr síunni eftir hverja notkun. Setjið hæfilegt magn af þvotti í þurrkarann, hvorki of mikið né of lítið. Hvort tveggja veldur meiri orkunotkun en ef þurrkað er hæfilegt magn í einu. Notið sparnaðarstillingu þegar henni verður við komið.

Örbylgjuofninn
Tími og orka sparast þegar matreitt er í örbylgjuofni. Það tekur til dæmis 7 mínútur (0, 14 kWh) að matreiða 250 g af kartöflum í örbylgjuofni en 25 mínútur (O,22 kWh) á eldavél. Notið eldunaráhöld sem hentar örbylgjuofninum. Sjóðið eða hitið matinn í lokuðum ílátum, þannig helst hitinn betur á matnum og orkan sparast. Með því að nota lítið vatn þarf styttri suðutíma. Oft er hægt að sleppa vatninu aleg þegar matreitt er í örbylgjuofni.
Eldavélin
Gætið þess að potturinn sé hæfilega stór á helluna. Ef potturinn er 2 sentímetrum minni en hellan sem hann er á fara 20% orkunnar til spillis. Ósléttur botn á potti eða pönnu getur valdið 40% meiri rafmagnsnotkun. Notið þétt lok á pottinn og takið það ekki af meðan soðið er. Loklaus pottur þarf tvöfalt meiri orku en lokaður. Það þarf tvisvar til þrisvar sinnum meiri orku til að glóðarsteikja í ofninum en að steikja á hefðbundinn hátt.
Frystikistan
Æskilegt er að frystikistan sé á köldum stað. Hún notar 5% minna rafmagn fyrir hvert stig sem umhverfishitinn er lægri. Gætið þess að kæliristin á bakhlið kistunnar sé hrein og að nóg loft geti leikið um hana. Innilokuð og rykug kælirist getur valdið 30% meira rafmagnsnotkun. Látið frystikistuna ekki ganga tóma. Tóm kista notar jafn mikið rafmagn og full.
Ísskápurinn
Hæfilegt hitastig í ísskápnum er 4-5° C. Rafmagnsnotkun eykst um 4 % fyrir hvert stig sem hitinn er lækkaður. Gætið þess að loftræsting sé nægileg bak við kæliskápinn. Léleg loftræsting getur valdið 5-10% meiri rafmagnsnotkun. Kæliskápa, sem ekki eru með sjálfvirka afhrímingu, þarf að þíða reglulega.
Kaffivélin
Það þarf um 30% minni orku ef kaffi er lagað í kaffivél í stað þess að nota hraðsuðuketil og hella uppá á gamla mátann. Notið hitakönnu til að halda kaffinu heitu en ekki hitaplötu kaffivélarinnar.
Gleymd notkun
Mörg heimilistæki nota rafmagn jafnvel þó að þau séu ekki í gangi. Þetta eru tæki sem búin eru fjarstýringu og eru tilbúin að hlýða skipun frá henni, t.d. sjónvörp, hljómtæki, myndbandstæki o.fl. Öll þessi tæki auka orkunotkunina. Þó svo að þau taki lítið afl er oftast kveikt á þeim allan sólahringinn allan ársins hring. Sem dæmi má nefna að myndbandtæki, sem stjórnað er með fjarstýringu, notar um 100 kWh á
ári. Það er að slökkva alveg á myndbandstækinu hefur bæði8 kosti og galla. Ef slökkt er alveg á tækinu sparast þessi 100 kWh en á móti þarf oft að endurstilla klukku og dagsetningu þegar kveikt er næst.
Jæja þá vitið þið það
XXX

5 comments:

Elísa Dagmar said...

jahérna hér Alma umhverfisvæna... :D :D En margir góðir punktar þarna á ferð :D :D :D

hilda said...

Alma....ég er svo glöð að sjá að fleiri hugsa eins og ég....;) er þetta uppeldið eða er þekking okkar á staðardagskrá 21 að skila sér hérna??? ;) hehe....er svo ánægð með bloggin þín....haltu þessu áfram;)
knús

Sólveig said...

Mikið held ég hann Jónas væri ánægður með þig ef hann læsi þetta...........:)
Hér er ekki hundi út sigandi vegna veðurs (Vörður háaldraði kemst varla út að pissa) og þessvegna gott að kúra bara inni með kertaljós.
xxxx mamma.

Unknown said...

Alma þú ert svooo...svoooo umhverfisvæn...en ég segi bara eins og Elísa...margir góðir punktar í þessu, maður kannski pælir aðeins meira fyrir vikið ;)

Knús, knús...

Sesar bloggar !!!! said...

Mjög góðir punktar Alma mín :D þetta kennir kannski Elísu að slökkva stundum á sjónvarpinu og stofuljósinu öðru hverju hahahaha